„S-áhrifin“ frá Massey Ferguson!

Nýja MF 6700 S sameinar alla kosti fjögurra strokka vélar og dráttar-, ýti- og lyftigetu sambærilegrar dráttarvélar með sex strokka vél.

Útkoman er gríðarlega öflug dráttarvél sem hentar fullkomlega fyrir þá sem vilja fyrirferðarlitla vél sem býr yfir nægilegum krafti til að lyfta og knýja nýjustu gerðir tengitækja bæði að framan og aftan.

Helstu kostir

Tækni og nýsköpun

Öflug dráttarvél með krafta í kögglum.
AGCO Power vél

AGCO Power vél

AGCO Power 4,9 lítra, 4 strokka vél.

Aflstýring

Aflstýring

Aflstýringarlokinn veitir möguleika á einföldum þrjár-í-einni aðgerðum. Notendur geta skipt á milli áfram gíra og afturábak gíra, skipt með Dynashift hraðastillingum og valið hlutlausan til að hafa hægri höndina lausa.

Sambyggðar Stage V vélar

Sambyggðar Stage V vélar

Þessar vélar eru samhæfanlegar ströngu Stage V útblástursreglugerðunum með því að nota margverðlaunaða All-in-One kerfið frá Massey Ferguson sem inniheldur nú einnig auðskiljanlegan sótarefnahvata.

Dyna-VT

Dyna-VT

Massey Ferguson verkfræðingar hönnuðu fjölhæfa Dyna-VT gírkassann með afltilfærslu sem setur ný viðmið í auðveldri notkun og nákvæmni.

Dyna-6

Dyna-6

Brautriðjandi afkastageta og áreiðanleiki fæst af þessum hálf-Powershift gírkassa sem samanstendur af sex Dynashift hlutföllum, með fjórum þrepum og kúplingslausri skiptingu.

Aflstjórnun vélar - 20 hestafla Boost

Aflstjórnun vélar - 20 hestafla Boost

Þessar dráttarvélar græða heilmikið á aflstjórnun vélar (EPM), sem gefur vélinni færi á allt að 20 hestafla aflinnspýtingu, auk aukins togs, þegar þú þarft smá auka afl.

Stýrishúsin á MF 6700 S bjóða upp á vinnuumhverfi sem er sérhannað til að sporna gegn streitu og þreytu með því að bjóða upp á framúrskarandi þægindi, einfaldleika og yfirsýn.
Essential Stýrishús

Essential Stýrishús

Þetta er vissulega grunntæknilýsingin en hún er sannarlega ómissandi. Hún færir þér alla lykileiginleika sem þú býst við af Massey Ferguson dráttarvél - einfaldleika, rökfestu og fjölhæfni - en án óþarfa fágunar.

Exclusive stýrishús

Exclusive stýrishús

Dráttarvélar á þessi stigi eru útbúnar fjölda háþróaðra eiginleika, eru hannaðar fyrir hánytja landbúnaðarverkefni á stærri skala sem krefjast kostnaðarhagkvæmni.

Efficient Stýrishús

Efficient Stýrishús

Efficient pakkinn er helgaður framleiðslu aukinnar skilvirkni, þökk sé nokkrum lykileiginleikum sem gera notandanum kleift að vinna hraðar og uppfylla hærri markmið með meiri nákvæmni.

Hægri stólpi - Essential Stýrishús

Hægri stólpi - Essential Stýrishús

Hægri stólpinn geymir þá rofa sem ekki eru notaðir eins oft, eins og t.d. vinnuljósastillingar og svissinn.

Essential Panoramic Stýrishús

Essential Panoramic Stýrishús

Skýrt og ótruflað skyggni á hægri hönd sem ýtir undir örugga og skilvirka notkun hliðaruppsettra áhalda. Víðu heilsteyptu rúðurnar eru sérstaklega slitþolnar og vernda notandann fyrir ryki að utan.

Hægri T-handfang

Hægri T-handfang

Færið T laga handfang gírkassastýringarinnar einfaldlega áfram eða afturábak til að skipta upp eða niður í gegnum Dynashift gírhlutföllin fjögur. Til þess að skipta á milli sviða skal einfaldlega ýta á sviðvalshnappinn þegar þú flytur stöngina.

12 LED ljós

12 LED ljós

12 LED ljós breyta nótt í dag með framúrskarandi geisladýrð en lágri orkunotkun. LED pakkinn er einnig ljómandi fyrir dagvinnu þar sem hönnun þeirra gera dráttarvélina sýnilegri.

Quadlink fjaðurkerfi

Quadlink fjaðurkerfi

Quadlink fjaðurkerfið, sem hægt er að slökkva á, nýtist við vökvahöggdempara sem eru virkir á framöxulinum til að dempa hossun þegar farið er yfir ójafna vegi og akra og til að auka þægindi í flutningaverkefnum.

MF 6700 S var hönnuð til að bjóða upp á magnaða (og uppfærða) afkastagetu sem var áður eingöngu á færi dráttarvéla með sex strokka vél, með framúrskarandi lyftigetu og drifkrafti sem lætur hana fara létt með krefjandi vinnu með tengitækjum af nýjustu gerð.
Beygjuradíus

Beygjuradíus

MF 6700 S dráttarvélar geta beygt í hring sem er aðeins 9,5 m í þvermál. Þetta þýðir hraðari beygjur í spilduenda, hraðari ámokstur og aukin skilvirkni, bæði í vinnuvélinni og í mannafli.

Ný afturdekk sem eru 1,85 m í þvermál

Ný afturdekk sem eru 1,85 m í þvermál

Ný afturdekk sem eru 1,85 m í þvermál setja ný met í spyrnu og eru fáanleg sem valmöguleiki fyrir alla Dyna-6 gerðirnar. Bil frá jörðu eykst og jarðvegsþjöppun takmarkast.

Flæðislokar

Flæðislokar

Tveir til fjórir raf-vökvalokar eru staðalbúnaður og möguleiki er á allt að fimm afturflæðislokum ef þess er óskað.

Lyftigeta afturtengis - 9.600 kg

Lyftigeta afturtengis - 9.600 kg

Lyftigeta afturtengisins er allt að 9.600 kg. Afturtengi eru útbúin vökvadrifnu afþjöppunarkerfi til þess að losa tengitæki áreynslulaust og að auki er hægt að velja allt að fimm flæðislokum.

Sterkbyggð og innbyggð framlyfta

Sterkbyggð og innbyggð framlyfta

Sterkbyggð og innbyggð framlyfta (IFLS) er fáanleg sem valmöguleiki og er hönnuð til að mæta hreyfingum framfjöðrunarinnar.

Nákvæm jarðvegsstjórnun

Nákvæm jarðvegsstjórnun

Stafræna ELC kerfið frá Massey Ferguson setur ný viðmið í jarðvegsstjórnun með nákvæmari dýptarstillingum og í að fylgja ójöfnum í sverðinum.

Sjálfvirkur jafnvægisbúnaður

Sjálfvirkur jafnvægisbúnaður

Uppsetning sjálfvirka jafnvægisbúnaðarins hefur einnig verið betrumbætt og einfölduð með styttri keðju. Einstefnu jafnvægisbúnaður sitt hvoru megin veitir auka áreiðanleika.

Tæknilausnirnar í MF 6700 S-línunni taka af allan vafa um að Massey Ferguson setur markið hátt þegar kemur að framþróun og nýsköpun. Til þess að geta náð fram meiri skilvirkni og afköstum skiptir öllu máli að hafa réttar upplýsingar. Þess vegna býður Massey Ferguson upp á einfaldar og áreiðanlegar tæknilausnir sem skila sér í einstöku notagildi, auknum afköstum, betri afrakstri, minni rekstrarkostnaði og aukinni arðsemi.
Datatronic 5

Datatronic 5

Datatronic 5 er fáanleg sem valkostur á Efficient og Exclusive gerðum og hún safnar og vistar gögn um bæði dráttarvélina sjálfa og stillingar fyrir nákvæmnisbústjórn. Að auki er hægt að nota stjórnstöðina til að stjórna MF Auto Guide, ISOBUS og myndavélum.

Fieldstar 5

Fieldstar 5

Nýja Fieldstar 5 stjórnstöðin er hönnuð með hyggjuvitsviðmót fyrir nákvæmnisbústjórn í huga og býður uppá auðnota upplifun af kerfi sem eykur skilvirkni, framleiðni og ágóða.

ISOBUS

ISOBUS

Forðist auka skjái - og þörf fyrir auka stýripinna - með ISOBUS samhæfni, eiginleiki sem er innbyggður í hönnunarlýsingu Datatronic.

MF Task Doc

MF Task Doc

MF Task Doc kerfið á sér tryggan stað í bústjórn framtíðarinnar. Það auðveldar bændum að auka framleiðni með því að safna nákvæmum mæligögnum og gera þau aðgengileg notandanum.

MF Guide

MF Guide

MF Guide er handfrjáls búnaður fyrir nýframleiddar MF dráttarvélar eða sem eftiruppsetning með úrvali eiginleika. Hann er fær um nákvæmni uppá metra, dm og cm sem skilar sér í skilvirkari bústjórn.

AgControl

AgControl

Með alsjálfvirka kerfinu Section Control fyrir ISOBUS-tengitæki geta stjórnendur dreift fræjum, áburði og varnarefnum án skörunar. Þannig má koma í veg fyrir tvíverknað og að dreift sé á svæði utan spildujaðars.

MF Connect

MF Connect

MF Connect auðveldar þér - og söluaðila - að samhæfa, hámarka og tengja flotann þinn fumlaust svo að þú getir stjórnað viðhaldi og haft yfirsýn yfir notkun véla.

Fáanlegar gerðir

Gerð

Hámarksafl (hestöfl)

Vél

Gírkassi

Hámarkstog (Nm)*

Lyftigeta (kg)

MF 6713 S 135 Sambyggður Stage V Dyna-6, Dyna-VT 648 9.600
MF 6714 S 145 Sambyggður Stage V Dyna-6, Dyna-VT 691 9.600
MF 6715 S 155 Sambyggður Stage V Dyna-6, Dyna-VT 745 9.600
MF 6716 S 165 Sambyggður Stage V Dyna-6, Dyna-VT 790 9.600
MF 6718 S 180 Sambyggður Stage V Dyna-6, Dyna-VT 845 9.600
* Við 1500 sn./mín. með EPM

Finna söluaðila